Fotbolti.net
27.08.10 - 00:17
Hafliði Breiðfjörð

Dragan Stojanovic hættur hjá Þór/KA (Staðfest)

Dragan Stojanovic er hættur þjálfun Þór/KA.

Dragan Stojanovic er hættur þjálfun Þór/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Dragan Stojanovic er hættur starfi þjálfara kvennaliðs Þór/KA en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í kvöld. Siguróli Kristjánsson mun stýra liðinu tímabundið.
Dragan Stojanovic hafði tekið við liðinu í september árið 2006 og á þeim tíma sem hann hefur stýrt liðinu hefur gengi þess farið stig vaxandi.

Liðið endaði í næst neðsta sæti deildarinnar árið 2007, því fjórða árið 2008, þriðja 2009 og er sem stendur í öðru sæti deildarinnar og hafði komist í undanúrslit VISA-bikarsins.

Þá vann liðið Lengjubikarinn í fyrra undir hans stjórn sem var fyrsti titill liðsins.

Þór/KA á leik gegn FH á mánudagskvöld og svo annan gegn Stjörnunni laugardaginn 4. september.

Rætt verður við Dragan í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.