Fotbolti.net
27.08.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA um brotthvarf Dragan: Samstarfið ekki hnökralaust

Dragan Stojanovic fyrrverandi þjálfari Þór/KA.

Dragan Stojanovic fyrrverandi þjálfari Þór/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Eins og við greindum frá eftir miðnætti í gærkvöld er Dragan Stojanovic hættur starfi þjálfara kvennaliðs Þór/KA. Félagið birti eftir frétt okkar yfirlýsingu á vef sínum þar sem þetta er staðfest.

Þar kemur fram að samstarf leikmanna, þjálfara og leikmannaráðs kvenna hafi ekki verið hnökralaust og í ljósi þess hafi verið ákveðið fyrir tæpu ári að hann myndi hætta eftir þetta tímabil, og talið rétt í stöðunni núna að hann hætti strax.

Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan en eftir um klukkustund má lesa viðtal við Dragan sjálfan hér á Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Dragan Stojanovic rekinn frá Þór/KA (Staðfest)
Yfirlýsing Þórs
Framundan er spennandi barátta um 2. sætið í Pepsideild kvenna og ljóst að í þeirri baráttu þurfa allir að vera á tánum, leikmenn, þjálfarar og leikmannaráð kvenna. Samstarf þessara aðila hefur ekki verið hnökralaust.

Í ljósi þess að ákveðið hafði verið fyrir tæpu ári síðan að þetta yrði síðasta tímabil Dragans með meistaraflokk Þór/KA, var það talið rétt í stöðunni núna að Dragan mundi stíga til hliðar.

Vonandi verður þetta til þess að þeir sem eftir standi þjappi sér saman og vinni sameiginlega að því að klára tímabilið með sæmd og undirbúa framtíðina.

Heimild: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.