Fotbolti.net
27.08.10 - 08:53
Hafliði Breiðfjörð

Liverpool samþykkir tilboð Barcelona í Mascherano (Staðfest)

Javier Mascherano er að fara til  Barcelona.

Javier Mascherano er að fara til Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur tekið tilboði Barcelona í argentíska miðjumanninn Javier Mascherano en þetta var staðfest á vefjum félaganna í morgun.

Félagaskiptin eru þó ekki alveg gengin í gegn en spænska félagið hefur fengið leyfi til að hefja viðræður við leikmanninn og í kjölfarið kemur væntanlega læknisskðun og svo undirritun samning.

Mascherano hefur verið orðaður við Barcelona í allt sumar og Inter Milan hefur einnig reynt að fá hann. Hann hafði óskað eftir að fá að fara og Roy Hodgson stjóri Liverpool tók hann úr liðinu meðan félagaskiptaglugginn er opinn.
Yfirlýsing Liverpool
Knattspyrnufélagið Liverpool hefur komist að samkomulagi um skilmála fyrir félagaskipti Javier Mascherano til FC Barcelona.

Spænska félagið hefur nú fengið leyfi til að ræða við Argentíska miðjumanninn.


Yfirlýsing á vef Barcelona
FC Barcelona og Liverpool FC hafi komist að samkomulagi í meginatriðum um félagaskipti Javier Mascherano, sem mun koma til félagsins næstu fjórar leiktíðir.

Samkomulagið náðist eftir mikið framlag félagsins undanfarnar klukkustundir og vilja og ákveðni leikmannsins í að koma.

FC Barcelona mun gefa frekari upply´singar um málið þegar leikmaðurinn hefur farið í gegnum læknisskoðun og félagaskiptin eru frágengin. Javier Mascherano mun koma ti Barcelona um helgina.

Heimild: Vefur Liverpool | Vefur Barcelona

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.