27.08.10 - 13:18
Hannes Daði Haraldsson
Fortune til WBA (Staðfest)

Fortune í leik með Celtic

Mynd: Getty Images

Fortune í leik með Celtic

Mynd: Getty Images
West Brom hafa staðfest kaup sín á sóknarmanninum Marc-Antonie Fortune frá Celtic fyrir óuppgefna upphæð.
Fortune skrifaði undir tveggja ára samning en hann lék með West Brom seinni hluta tímabilsins 2008-2009 á láni frá Nantes en West Brom féllu úr úrvalsdeildinni það árið og skoraði hann fimm mörk í 17 leikjum fyrir liðið.
,,Það er frábært að fá Marc aftur.\" sagði Di Matteo knattspyrnustjóri West Brom,
,,Það besta við kaupinn er það að Marc þarf lítið að aðlagast. Það hefur fátt breyst síðan hann var hér síðast.\"
,,Marc er góður sóknarmaður og þar sem við keyptum Odemwingie í síðustu viku erum við nú vissir að við erum með frábæra framlínu þar sem er mikil samkeppni.\"

Heimild: sky sport