Fotbolti.net
27.08.10 - 14:13
Hafliði Breiðfjörð

Viðar Sigurjónsson tekur við Þór/KA (Staðfest)

Kvennalið Þór/KA hefur fengið nýjan þjálfara. Viðar Sigurjónsson tók við starfinu af Dragan Stojanovic sem hætti óvænt í gær.

Kvennalið Þór/KA hefur fengið nýjan þjálfara. Viðar Sigurjónsson tók við starfinu af Dragan Stojanovic sem hætti óvænt í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Kvennaboltinn
Viðar Sigurjónsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Þór/KA og stýrir því út tímabilið en frá þessu var greint á vef Þórs í dag.

Viðar tekur við starfinu af Dragan Stojanovic sem hætti óvænt með liðið í gær eftir nærri fjögur ár í starfi. Hann hefur þjálfað 2. flokk Þór/KA undanfarna tvo mánuði

Viðari til aðstoðar verður Siguróli Kristjánsson sem var aðstoðarmaður Dragans áður. Viðar hafði einmitt tekið við 2. flokknum af Siguróla fyrir tveimur mánuðum.
Yfirlýsing af vef Þórs
Knattspyrnudeild Þórs hefur ráðið Viðar Sigurjónsson sem þjálfara meistaraflokk Þór/KA og mun hann því stýra liðinu út þetta tímabil

Knattspyrnudeild Þórs hefur ráðið Viðar Sigurjónsson sem þjálfara meistaraflokk Þór/KA og mun hann því stýra liðinu út þetta tímabil.

Honum til aðstoðar verður sem fyrr Siguróli Kristjánsson sem verið hefur aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna. Viðar hefur verið starfandi sem þjálfari 2. flokks Þór/KA sl. tvo mánuði.

Heimasíða Þórs bíður Viðar velkomin til starfa og hlakka til samstarfsins við þá félaga.



Heimild: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.