Fotbolti.net
27.08.11 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Raul Tamudo til Rayo Vallecano (Staðfest)

Raul Tamudo til Rayo Vallecano (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rayo Vallecano hefur gert eins árs samning við framherjann reynda Raul Tamudo.

Þessi 33 ára gamli leikmaður skrifaði undir samninginn í gær og verður því með í fyrstu umferð deildarinnar um helgina.
Tamudo lék á sínum tíma í fjórtán ár með Espanyol þar sem hann er í miklum metum.

Á síðasta tímabili spilaði hann síðan með Real Sociedad þar sem hann skoraði sjö mörk í 31 leik.

Tamudo hefur skorað fimm mörk í þrettán landsleikjum með Spánverjum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.