27.08.11 - 07:31
Ívan Guðjón Baldursson
Goran Pandev lánaður til Napoli (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Opinberað hefur verið á vefsíðu AS Napoli að Goran Pandev er búinn að skrifa undir eins árs lánssamning við félagið.
Mikið hefur verið talað um að Pandev væri á útleið frá San Siro og var hann þá aðallega bendlaður við Schalke í Þýskalandi og Genoa á Ítalíu.

,,Ég er mjög ánægður að fá að spila í Meistaradeild Evrópu með félagi eins og Napoli, sem er mjög mikilvægt félag,\" sagði Pandev við Sky Sport Italia.
Napoli þarf ekkert að borga fyrir Pandev auk þess sem Inter borgar stærsta part launa hans áfram þó hann spili ekkert með félaginu komandi tímabil.
Nú vantar Inter framherja eftir brottför Eto\'o og er talið mjög líklegt að Diego Forlan skrifi undir á næstunni en umboðsmaður Forlan er búinn að staðfesta það að samningsviðræður eru milli hans og félagsins.