27.08.11 - 07:46
Ívan Guðjón Baldursson
Atletico Madrid að borga metfé fyrir Falcao (Staðfest)

Falcao fagnar hér í fanginu á Hulk.

Mynd: Getty Images

Falcao fagnar hér í fanginu á Hulk.

Mynd: Getty Images
Búið er að staðfesta kaup Atletico Madrid á tveimur leikmönnum Porto, þeim Radamel Falcao og Rubén Micael.
Falcao kemur til með að kosta Atlético 40 milljónir evra, en félagið mun líklega þurfa að borga 7 milljónir í viðbót ef Falcao stenst ýmsar klásúlur í samning sínum sem tengjast markaskorun og slíku.
Til að fá Falcao þurfti Atletico einnig að borga 5 milljónir fyrir miðjumanninn Rubén Micael, sem gerir þetta að 52 milljónum evra samtals.

Falcao er búinn að skrifa undir fimm ára samning við félagið og á hann að vera arftaki Sergio \'Kun\' Aguero sem var keyptur fyrr í sumar af forríku Manchester City félagi.
Falcao hefur verið frábær fyrir Porto síðustu tímabil þar sem hann er búinn að skora 41 mark í 51 leik fyrir félagið.
Rubén Micael, sem er betur þekktur sem Micael, mun hins vegar vera lánaður til Real Zaragoza næsta tímabil samkvæmt Telemadrid, en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum.

Heimild: Atletico Fans