27.08.11 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Emiliano Insúa farinn frá Liverpool (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Emiliano Insúa, vinstri bakvörður Liverpool, er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Sporting CP í Portúgal eftir komu José Enrique til Liverpool.
Kaupverð er óvitað en Insúa hefur verið orðaður við Fiorentina, QPR og Galatasary í sumar en nú er staðfest að hann mun leika í Portúgal.
Kaupverð er óvitað en Insúa hefur verið orðaður við Fiorentina, QPR og Galatasary í sumar en nú er staðfest að hann mun leika í Portúgal.
Insúa er 22 ára gamall og á 44 leiki með Liverpool að baki og 4 landsleiki með argentínska landsliðinu.
Hann þarf ekkert atvinnuleyfi vegna þess að hann á spænskan afa sem gerir honum kleift að búa og vinna í flestum löndum Evrópusambandsins.
Hann þarf ekkert atvinnuleyfi vegna þess að hann á spænskan afa sem gerir honum kleift að búa og vinna í flestum löndum Evrópusambandsins.
