Fotbolti.net
27.08.11 - 13:39
Ívan Guðjón Baldursson

Luke Young kominn til QPR (Staðfest)

Luke Young kominn til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers hefur lokið við kaupin á Luke Young, hægri bakverði Aston Villa, en kaupverð hefur ekki enn verið gefið upp.

Young er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við QPR sem leikur heimaleiki sína á Loftus Road.
,,Ég er tilbúinn í nýja áskorun,\" sagði Young við opinbera vefsíðu QPR.

,,Það eru stórir hlutir að fara að gerast hjá þessu félagi og ég er mjög ánægður með að vera partur af því.

,,Það að ég og Joey [Barton] séum búnir að skrifa undir hjá QPR sýnir að liðið stefnir hátt á tímabilinu og ég get ekki beðið eftir því að klæðast hvítu og bláu treyju liðsins.\"


Neil Warnock, knattspyrnustjóri QPR, er mjög ánægður með þessi kaup. ,,Ég er búinn að leita lengi að varnarmanni með mikla úrvalsdeildarreynslu og Luke passar fullkomlega,\" sagði Warnock.

,,Hann getur spilað hvar sem er í vörninni og ég er viss um að þessi fjölbreytileiki muni koma sér mjög vel fyrir okkur.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.