27.08.11 - 14:45
Ívan Guðjón Baldursson
Sergio Almiron til Catania (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska Seríu-A liðið Catania Calcio hefur bætt við sig enn einum leikmanninum í sumar, en nú er komið að miðjumanninum Sergio Almíron.
Almíron er þrítugur miðjumaður og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Hann kemur frá Juventus og er tíundi leikmaðurinn til að ganga í raðir Catania í sumar.

Brottför hans frá Juventus skapar pláss í liðinu fyrir Marcelo Estigarribia sem er kantmaður sem er nýkominn til Juventus frá franska félaginu Le Mans.
Estigarribia er paragvæskur landsliðsmaður og er búinn að standast læknisskoðun hjá Juventus og mun koma til félagsins á láni en í lánssamningnum er klásúla um að Juventus megi kaupa hann eftir tímabilið.