Fotbolti.net
27.09.06 - 11:38
Magnús Már Einarsson

Gerrard til Sheffield United (Staðfest)

Gerrard til Sheffield United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Paul Gerrard hefur gert fjögurra mánaða samninga við Sheffield United eftir að hafa verði án félags frá því í vor þegar hann yfirgaf Nottingham Forest.
Gerrard sem er 33 ára hefur æft með Sheffield United að undanförnu en hann kannast við sig hjá félaginu þar sem hann var í láni hjá félaginu 2003/2004 og spilaði þá sextán leiki.

,,Ég átti í viðræðum við nokkur félög en ekkert kom út úr því. Ég var að æfa sjálfur þegar að Neil Warnock hrindi í mig. Þetta hentaði bæði mér og félaginu í lokin og ég hef skrifað undir þar til í félagaskiptaglugganum í janúar," sagði Gerrard.

Hann byrjaði feril sinn hjá Oldham áður en hann fór til Everton á eina milljón punda árið 1996. Síðan þá hefur hann verið í láni hjá Oxford, Ipswich og Sheffield United áður en hann fór til Forest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.