Fotbolti.net
27.09.10 - 13:42
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Borgþórsson tekur við kvennaliði Vals (Staðfest)

Gunnar Borgþórsson.

Gunnar Borgþórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kvennaboltinn
Valur sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem það var staðfest að Gunnar Borgþórsson sé tekinn við þjálfun kvennaliðs félagsins en Freyr Alexandersson fráfarandi þjálfari verður aðstoðarmaður Kristjáns Guðmundssonar með karlaliðið. Gunnar var yfirþjálfari yngri flokka Selfoss auk þess að leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar þar sem hann lék 3 leiki auk eins bikarleiks í sumar.
Yfirlýsing Vals
Gunnar Borgþórsson ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna
- Freyr Alexandersson tekur við sem aðstoðarþjálfari meistarflokks karla -

Stjórn knattspyrnudeildar Vals hefur komist að samkomulagi við Gunnar Borgþórsson yfirþjálfara yngri flokka Selfoss og umsjónarmann knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi um að hann takið við sem aðalþjálfari kvennaliðs Vals.

Þá hefur Freyr Alexandersson þjálfari íslandsmeistaraliðs Valskvenna verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla frá og með 1. október næstkomandi og mun starfa jafnframt sem tæknilegur ráðgjafi meistaraflokks kvenna.

Freyr mun einnig, í samstarfi við Kristján Guðmundsson aðalþjálfara karla, stýra stefnumótun 2. og 3.fl. karla og kvenna ásamt þjálfurum þessara flokka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.