Fotbolti.net
27.09.10 - 20:21
Magnús Már Einarsson

Rúnar Kristinsson áfram þjálfari KR (Staðfest)

Rúnar Kristinsson áfram þjálfari KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, samþykkti í kvöld nýjan þriggja ára samning við félagið.

Þá er ljóst að Pétur Pétursson verður áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks og þjálfari 2.flokks hjá KR.
Rúnar tók við þjálfun liðsins af Loga Ólafssyni 19. júlí síðastliðinn og í kjölfarið gerði hann fína hluti.

KR var í 9. sæti Pepsi-deildarinnar þegar hann tók við og það endaði í 4. sæti sem gefur þátttökurétt í Evrópudeild UEFA á næsta ári.

KR lék 13 leiki undir stjórn Rúnars, sigraði í átta leikjum, gerði eitt jafntefli en tapaði fjórum. Markatalan var 31-20.

Rúnar lék á sínum tíma með Örgryte, Lilleström og Lokeren en hann kom heim úr atvinnumennsku árið 2007.

Í kjölfarið lék hann eitt tímabil með KR áður en hann lagði skóna á hilluna og gerðist yfirmaður íþróttamála hjá félaginu.

Í sumar tók Rúnar síðan við þjálfun KR og nú er ljóst að hann mun stýra liðinu áfram næstu árin.

Heimild: Heimasíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.