Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 27. september 2020 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
2. deild: Þróttarar unnu Kórdrengi - Völsungur úr fallsæti
Þróttur Vogum vann gegn toppliðinu.
Þróttur Vogum vann gegn toppliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórum leikjum af sex er lokið í 2. deild karla í dag. Haukar völtuðu yfir Víði, Dalvík/Reynir sótti stig í Njarðvík, Þróttarar unnu topplið Kórdrengja og Völsungur vann gegn ÍR með marki undir lokin.

Sigurmark Völsunga kom undir blálok leiksins og kemur Húsavíkurdrengjum upp úr fallsæti. Kaelon Fox skoraði með skalla.

Dalvík/Reynir heldur sér á lífi í fallbaráttunni en gerir vonir Njarðvíkur að mjög veikum í toppbaráttunni. Þróttur Vogum er komið í 2. sætið með 40 stig, Kórdrengir eru með 43 stig og Selfoss getur komist upp í 40 stig ef liðið vinnur gegn KF í dag.

„Þróttarar hafa sigur og þeir tryllast af gleði. Rosalegur leikur frá þeim og stigin verðuskulduð líklega," skrifaði Sverrir Örn Einarsson í beinni textalýsingu undir lok leiks Þróttara og Kórdrengja.

Haukar 6 - 1 Víðir
1-0 Oliver Helgi Gíslason
1-1 Björn Bogi Guðnason
2-1 Tómas Leó Ásgeirsson, víti
3-1 Sigurjón Már Markússon
4-1 Tómas Leó Ásgeirsson
5-1 Nikola Dejan Djuric
6-1 Kristófer Jónsson

Njarðvík 1 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Ivan Prskalo ('49)
1-1 Áki Sölvason ('69)

Þróttur Vogum 1 - 0 Kórdrengir
1-0 Andri Jónasson ('62)
Rautt Spjald: Arnleifur Hjörleifsson, Kórdrengir ('90)

Völsungur 1 - 0 ÍR
1-0 Kaelon Fox (´92)
Athugasemdir
banner