27.10.06 - 17:03
Gunnar Óli Sölvason
Wigan kaupir Kirkland (Staðfest)

Kirkland var í láni hjá WBA á síðustu leiktíð.

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hafa gengið endanlega frá kaupum á Chris Kirkland frá Liverpool. Kirkland kom upphaflega á láni til Wigan í sumar frá Liverpool, en samningurinn bauð uppá að Wigan gæti keypt hann ef hann stæði undir væntingum.
Kirkland skrifaði undir samning til 2009 og segist gríðarlega ánægður með það. ,,Ég er mjög ánægður með að framtíðin sé nú ljós," sagði Kirkland við heimasíðu Wigan.
,,Hlutirnir hafa gengið vel síðan ég kom, hópurinn er góður og einnig stjórinn. Þetta er metnaðarfullt félag sem stefnir hátt, og ég er ánægður með að fá að taka þátt í því. Ég nýt þess að spila í augnablikinu, og set mér það markmið eitt að spila vel fyrir Wigan, liðsfélagana og stjórann.”
Í þau fimm ár sem Kirkland var hjá Liverpool spilaði hann aðeins 45 leiki, en átti við erfið meiðsl að stríða á köflum. Hann var fljótur að tryggja sér sæti í aðalliði Wigan og stjórinn, Paul Jewell var hæstánægður með að hafa nælt í kappann.
Jewell sagði meðal annars: ,,Chris er heimsklassa leikmaður, og fagmaður fram í fingurgómana. Það var alltaf ætlunin að fá hann til liðsins, og það er ánægjulegt að það gekk fljótt og vel. Við efuðumst aldrei um hann og það hann hefur verið frábær síðan hann kom.”

Heimild: SKY