27.10.06 - 21:29
Magnús Már Einarsson
Stefán Logi Magnússon í KR (Staðfest)

Stefán Logi skýtur á markið úr aukaspyrnu gegn Aftureldingu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon er gengin í raðir KR en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í kvöld. Hann kemur til liðsins frá KS/Leiftri og mun berjast um markvarðarstöðuna í Vesturbænum við þá Kristján Finnbogason og Atla Jónasson.
Stefán Logi gekk til liðs við KS í fyrra og lék þar þá og síðan með KS/Leiftri í sumar. Við greindum frá því á dögunum að hann væri á leið í Landsbankadeildina og hefði mætt á æfingu hjá KR-ingum sem ákváðu að semja við hann.
Hann lék fjórtán leiki í annarri deildinni með KS/Leiftri í sumar en undir lok sumars var hann lánaður til Hvöt og lék hann einn leik með þeim í úrslitakeppni þriðju deildarinnar vegna meiðsla hjá markverði liðsins.
Stefán Logi var á sínum tíma á mála hjá Bayern Munchen og einnig hjá Bradford í Englandi. Hann kom heim úr atvinnumennskunni árið 2003 og gekk þá til liðs við Víking R. áður en að hann fór í Þrótt og síðan í KS/Leiftur.