27.10.07 - 21:02
Magnús Már Einarsson
Juande Ramos tekur við Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juande Ramos hefur gert fjögurra ára samning við Tottenham en hann tekur við liðinu af Martin Jol sem var rekinn á fimmtudag.
Ramos sem er 53 ára hætti hjá Sevilla í gærkvöldi en hann hefur náð góðum árangri með liðið undanfarin ár.
Tottenham hefur beðið um leyfi frá Leeds til að ráða Gus Poyet fyrrum leikmann félagsins sem aðstoðarmann Ramos.
,,Þetta er hópur sem hvaða þjálfari sem er myndi vera spenntur að vinna með. Það eru hæfileikar til að ná frábærum árangri," sagði Ramos en hann hefur unnið Evrópukeppni Félagsliða með Sevilla undanfarin tvö ár og í vor kom hann liðinu í Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögunni.
Marcos Alvarez sem vann með Ramos hjá Sevilla mun einnig koma í þjálfarlið Tottenham.
Samningur Ramos við Sevilla átti að renna út eftir tímabilið en hann hætti með liðið í gær og Manolo Jimenez sem var þjálfari unglingaliðs félagsins hefur tekið við í hans stað.
,,Ég þakka fyrir tækifærið til að fá að vinna sem þjálfari Tottenham, félag með mikla hefð og sögu. Frá því að þjálfaraferill minn byrjaði hef ég viljað starfa á Englandi. Það er von mín að ég geti endurgoldið það traust sem stjórn Spurs hefur sýnt mér."
,,Ég var mjög hrifinn af stuðningsmönnum Spurs bæði á heima og útivelli þegar að Sevilla mætti Spurs á síðustu leiktíð og það verða forréttindi að fá að vera þjálfari félags sem nýtur mikils stuðnings bæði á White Hart Lane og um allan heim," sagði Ramos.

Heimild: BBC