27.10.09 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Hans Backe tekur við Notts County (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hans Backe hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Notts County en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Þessi 57 ára gamli Svíi tekur við stjórnartaumunum af Ian McParland sem hætti fyrr í mánuðinum.
Backe þekkir Sven-Goran Eriksson vel en sá síðarnefndi er yfirmaður fótboltamála hjá Notts.
Backe var aðstoðarmaður Eriksson hjá Mexíkó og Manchester City en hann hefur einnig stýrt FC Kaupmannahöfn og Álaborg til sigurs í dönsku deildinni á ferli sínum.
Svíar vildu fá Backe sem næsta landsliðsþjálfara en hann ákvað frekar að semja við Notts County.

Heimild: BBC