27.11.07 - 12:16
Magnús Már Einarsson
Keflvíkingar fá Patrik Redo (Staðfest)

Redo í leik í Lengjubikarnum.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Redo í leik í Lengjubikarnum.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Framherjinn Patrik Redo, sem lék með Fram í sumar, hefur gengið til liðs við Keflvíkinga og gert tveggja ára samning við félagið.
Redo sem er 26 ára gamall er sænskur en hann kom til Fram fyrir síðasta tímabil. Áður lék Redo með Halmstad og Trelleborg í heimalandi sínu.
Í sumar lék hann ellefu leiki í Landsbankadeildinni en hann átti við þónokkur meiðsli að stríða.
Keflvíkingar hafa einnig verið með sænskan leikmann á reynslu að undanförnu að nafni Tobias Johansson en ekki er ljóst hvort að félagið semji við hann.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur