Forest hafnar öllum tilboðum í Anderson sem er á óskalista Man Utd - Tottenham vill fá Samu Aghehowa
banner
   fim 27. nóvember 2025 21:47
Brynjar Ingi Erluson
Van Persie sett soninn inn á - Verður hann rekinn?
Mynd: EPA
Shaqueel van Persie, 19 ára sonur Robin van Persie, þreytti frumraun sína með Feyenoord í 3-1 tapi liðsins gegn Celtic í Evrópudeildinni í kvöld.

Robin átti frábæra tíma hjá Arsenal og Manchester United á Englandi ásamt því að spila með Feyenoord og Fenerbahce, en hann lauk ferlinum með Feyenoord árið 2019.

Hann tók við sem aðalþjálfari hjá Feyenoord í febrúar og kom liðinu í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Þetta tímabil hefur verið blanda af góðum árangri og vonbrigðum, en liðið datt úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar en á sama tíma vann það alla þrjá deildarleiki sína í ágúst.

Undanfarið hefur frammistaðan verið döpur og í kvöld tapaði liðið fjórða leiknum í röð í öllum keppnum.

Van Persie gæti fengið sparkið á næstu vikum, en það var hægt að taka eitt fallegt atvik úr leiknum. Shaqueel, sonur Robin, kom inn af bekknum gegn Celtic í fyrsta leik sínum með Feyenoord, en myndir af skiptingunni má sjá hér fyrir neðan.

Shaqueel á leiki að baki með U17 ára landsliði Hollands og þykir gríðarlega efnilegur framherji.

Donyell Malen skoraði tvö mörk fyrir Villa í leiknum en á lokamínútunum minnkuðu gestirnir muninn.

Emery vildi sjá liðið ganga frá leiknum eftir að það komst í 2-0.

„Liðið var mjög einbeitt í leiknum. Fyrsta greining eftir leikinn er að við vorum stöðugir en þegar við vorum 2-0 yfir þá nýttum við ekki tækifærin til að skora þriðja markið.“

„Við vitum að við þurfum fleiri mörk til þess að vera meðal átta efstu í Evrópudeildinni og við slökuðum aðeins á í síðari hálfleiknum.“

„Lið eins og Young Boys er með reynslumikla leikmenn og með reynslu í Evrópu, þannig við vissum að þeir gætu skorað eitt mark, sem þeir gerðu, og þá getur maður komið sér í vandræði. Við verðum að læra af þessu í ferlinu og hvernig við reynum að koma í veg fyrir þessi augnablik í framtíðinni, líkt og við gerðum í kvöld.“

„Við verðum að finna jafnvægið og hvernig best sé að stýra leikjunum og keppnunum.“


Malen er að komast í sitt besta form en Emery hrósaði honum eftir leik. Hann segir leikmanninn í fínu lagi þrátt fyrir að hafa fengið aðskotahlut í sig er hann fagnaði fyrsta markinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner