27.12.08 - 12:36
Magnús Már Einarsson
Ricky Sbragia ráðinn knattspyrnustjóri Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ricky Sbragia hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Sunderland en hann hefur stýrt liðinu tímabundið í undanförnum fjórum leikjum.
Þessi 52 ára gamli Skoti tók við tímbundið eftir að Roy Keane sagði upp í byrjun mánaðarins og undir stjórn Sbragia sigraði Sunderland lið WBA og Hull örugglega, gerði jafntefli við Blackburn í gær og tapaði naumlega fyrir Manchester United á útivelli.
Sbragia kom til Sunderland sem aðalliðssþjálfari fyrir ári síðan en hann hefur áður verið í þjálfaraliðinu hjá Manchester United og Bolton.
Sunderland fékk meira en 30 umsóknir í knattspyrnustjórastarfið en Alan Curbishley, Phil Brown, Avram Grant, Louis van Gaal og Gerard Houllier voru allir orðaðir við félagið.
Hins vegar hefur Sbragia nú fengið tækifærið en samningur hans gildir næsta eina og hálfa árið.

Heimild: BBC