28.01.05 - 06:22
Magnús Már Einarsson
Delvecchio til Brescia (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Marco Delvecchio hefur fengið að fara frítt frá Roma til Brescia. Delvecchio sem er 31 árs kom til Roma frá Inter í nóvember 1995 og því hefur hann verið í um tíu ár hjá félaginu. Delvecchio hefur lítið fengið að spila hjá Roma enda liðið með frábæra framherja í sínum röðum eins og Vincenzo Montella.
Delvecchio var á sínum tíma í ítalska landsliðinu og skoraði hann fjögur mörk í 22 leikjum með liðinu og meðal annars gegn Frökkum í úrslitaleik EM 2000.
,,Þetta er mjög sársaukafull ákvörðun því ég elska félagið, stuðningsmennina og borgina. Ég átti tíu frábær ár hér en ég tel að á þessu stigi á ferli mínum þurfi ég að reyna að spila meira reglulega einhversstaðar annarsstaðar." Sagði Delvecchio en hann gerði eins og hálfs árs samning við Brescia.