28.01.05 - 11:08
Martin Keown til Reading (Staðfest)




Martin Keown hefur gengið til liðs við Ívar Ingimarsson og félaga hans í Reading. Keown og Leicester komust að samkomulagi um að samningi hans yrði rift og skrifaði hann undir hjá Reading til loka tímabilsins. Hann má ekki spila með í bikarkeppninni um helgina en verður löglegur í næstu viku.
John Madejski stjórnarformaður Reading sagði þetta á opinberri heimasíðu félagsins: "Þetta er frábært fyrir klúbbinn og nærvera Martin gefur Steve Coppell annan mjög góðan kost í vörnina á þessum mikilvæga tíma nú þegar tímabilið er farið að styttast í annan endann."
Keown varð þrefaldur Englandsmeistari með Arsenal auk þess að vinna FA bikarinn jafn oft. Reynsla hans er því dýrmæt liðinu sem er í toppbaráttunni í ensku 1. deildinni.
Keown varð þrefaldur Englandsmeistari með Arsenal auk þess að vinna FA bikarinn jafn oft. Reynsla hans er því dýrmæt liðinu sem er í toppbaráttunni í ensku 1. deildinni.
