Fotbolti.net
28.01.05 - 11:36

Portsmouth fær Skopelitis og Chalkias (Staðfest)

Konstantinos Chalkias

Konstantinos Chalkias

Canon
Portsmouth hafa gengið frá kaupunum á tveimur grískum leikmönnum. Þetta eru þeir Giannis Skopelitis sem á að koma í stað Amdy Faye á miðjunni en Faye fór til Newcastle í vikunni. Hann kemur fyrir 1 milljón punda frá Egaleo í heimalandi sínu.
Markmaðurinn Konstantinos Chalkias kemur fyrir óuppgefna upphæð en hann varð Evrópumeistari í sumar án þess þó að spila leik. Hann kemur frá Panathinaikos en það er fyrra lið Velemir Zajec stjóra Portsmouth.

Báðir verða löglegir í bikarkeppninni á morgun þegar Portsmouth mætir Southampton.

Þá er búist við því að tveir leikmenn til viðbótar fari til Portsmouth fyrir lok félagaskiptagluggans og yrði þá annar þeirra rússneski framherjinn Dmitri Bulykin en hinn sókndjarfur miðjumaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.