Fotbolti.net
28.01.05 - 23:33

Mido til Tottenham (Staðfest)

Mido til Tottenham (Staðfest)
Canon
Egypski framherjinn Mido er kominn til Tottenham. Hann gekkst undir læknisskoðun í gær og skrifaði í dag undir 18 mánaða langan lánssamning frá Roma. Hann er 21 árs gamall og var valinn leikmaður ársins 2002 í Afríku.
"Fyrstu kynni mín af klúbbnum eru þau að þetta er skipulagður klúbbur, með góða stjórn og ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað" sagði Mido.

"Ég er ánægður af því að það var mín ákvörðun að koma hingað. Ég hafði nokkra valkosti en mér leist vel á Spurs og ég lofa stuðningsmönnunum því að ég mun alltaf legja hart að mér og gera mitt besta til að vera í sem bestu formi."

Athyglisvert verður að fylgjast með þessum unga framherja sem lék meðal annars áður með Ajax og Marseille auk þess að spila með Roma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.