28.01.08 - 13:01
Magnús Már Einarsson
Mellberg til Juventus í sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sænski varnarmaðurinn Olof Mellberg hefur gert þriggja ára samning við Juventus og mun hann ganga til liðs við félagið í júlí þegar samningur hans við Aston Villa rennur út.
,,Ég er mjög ánægður með þetta samkomlag. Þetta verður mikilvæg reynsla," sagði Mellberg sem kom til Aston Villa frá Racing Santander árið 2001.
,,Núna verð ég að klára tímabilið í treyju Aston Villa en ég get ekki beðið eftir að koma til Juventus," bætti þessi þrítugi leikmaður við.
Martin O'Neill stjóri Aston Villa sagði á dögunum að hann myndi ekki hika við að láta Mellberg spila út tímabilið með liðinu þrátt fyrir að hann myndi gera samning um að ganga til liðs við Juventus í sumar eins og núna er orðin raunin.
Claudio Ranieri þjálfari Juventus hefur einnig fengið varnarmanninn Guglielmo Stendardo á láni út tímabilið og allar líkur eru á að hann gangi einnig frá kaupum á Mohamed Sissoko miðjumanni Liveropol í dag.

Heimild: BBC