Andri Janusson og Guðjón Lýðsson til Hauka (Staðfest)

Nýju myndirnir fjórir við undirskriftina í gær ásamt stjórnarmönnum og þjálfurum. Gunnar og Albert Högni vinstra megin, Guðjón og Andri hægra megin. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir sem fyrir voru ásamt þjálfurum og stjórnarmönnum. Á innfelldu myndinni er Einvarðaur Hermannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýju myndirnir fjórir við undirskriftina í gær ásamt stjórnarmönnum og þjálfurum. Gunnar og Albert Högni vinstra megin, Guðjón og Andri hægra megin. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Auk þeirra fjögurra hefur nú verið gengið frá samningum við þrjá af sterkustu leikmönnum félagsins. Þetta eru þeir Þórhallur Dan Jóhannsson sem gerði eins árs samning, Jónmundur Grétarsson sem gerði tveggja ára samning og Ómar Karl Sigurðsson sem samdi til tveggja ára.
Félagið hefur einnig gengið frá samningum við fimm unga leikmenn. Það eru þeir Einvarður Hermannsson, Gunnar Richter, Enok Eiðsson, Ísak Örn Gunnarsson og Sindri Örn Steinarsson sem gerðu allir þriggja ára samning við Hauka.
Nýjustu leikmennirnir tveir sem koma frá Álftanesi eru góður liðsstyrkur við félagið. Andri Janusson er framherji sem verður 23 ára gamall á árinu. Hann hóf feril sinn með Haukum og lék þar 2005 og 2006 en ákvað þá að ganga til liðs við nýtt lið Álftanes.
Þar hefur hann leikið undanfarin tvö tímabil og vakti mikla athygli í sumar þegar hann var einn af markahæstu leikmönnum Íslandsmótsins með 20 mörk í 15 leikjum.
Guðjón Pétur Lýðsson verður 22 ára gamall á árinu. Hann hóf feril sinn með meistaraflokki hjá Haukum árið 2006 en fór þaðan til Breiðabliks þar sem hann spilaði aðeins einn leik í Landsbankadeildinni árið 2007 áður en hann fór til Stjörnunnar þar sem hann var fram á mitt tímabil í fyrra er hann gekk í raðir Álftanes og skoraði þar 4 mörk í 7 leikjum.
Rætt verður við Andra Marteinsson þjálfara Hauka hér á Fótbolta.net síðar í dag.

Þeir sem fyrir voru ásamt þjálfurum og stjórnarmönnum. Á innfelldu myndinni er Einvarðaur Hermannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
