Fotbolti.net
28.01.09 - 16:22
Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson til AZ Alkmaar (Staðfest)

Jóhann Berg Guðmundsson í leik með Breiðablik.

Jóhann Berg Guðmundsson í leik með Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Breiðablik hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að félagið hafi selt Jóhann Berg Guðmundsson til AZ Alkmaar, aðeins klukkustund eftir að leikmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Breiðablik.

Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan.
Fréttatilkynning frá stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks

Knattspyrnudeild Breiðabliks og AZ Alkmaar hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Jóhanns Bergs Guðmundssonar. Það ríkir sátt um samkomulagið milli félaganna.

Það er ánægjuefni að Jóhanni Berg standi til boða að komast í atvinnumennsku og vill stjórn Breiðabliks þakka honum frábæra frammistöðu í sumar og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.