28.01.10 - 11:10
Magnús Már Einarsson
Jimenez fer frá West Ham - Semur við Parma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Búið er að rifta lánssamningi Luis Jimenez hjá West Ham en hann verður núna hjá Parma á láni út tímabilið.
Jimenez, sem er framherji, kom til West Ham á láni frá Inter í sumar en náði ekki að finna sig í ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég er ánægður með að fara til Parma. Reynsla mín í ensku úrvalsdeildinni gekk ekki eins vel og ég hafði vonast eftir,\" sagði Jimenez.
,,Núna vonast ég til að vera í langan tíma hjá sama liðinu þrátt fyrir að það hafi ekki tekist hingað til á ferli mínum.\"

Heimild: Sporting Life