Fotbolti.net
28.01.10 - 16:47
Magnús Már Einarsson

Robinho til Santos á láni (Staðfest)

Robinho fagnar marki á síðustu leiktíð.

Robinho fagnar marki á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Brasilíska félagið Santos hefur náð samkomulagi við Manchester City um að fá Robinho á láni í hálft ár.
Santos mun því borga laun Robinho þar til að lánssamningurinn rennur út þann 4.ágúst.

Robinho gerði sinn fyrsta atvinnumannasamning við Santos árið 2002 og skoraði í kjölfarið 46 mörk í 111 leikjum með liðinu áður en hann fór til Real Madrid.

,,Robinho er leikmaður sem þarf að spila reglulega og ég óska honum góðs gengis á lánstímanum,\" sagði Roberto Mancini stjóri Manchester Ciy.

Robinho kom til Manchester City frá Real Madrid á 32,4 milljónir punda árið 2008 og varð um leið dýrasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi.

Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur ekki átt fast sæti í liði Manchester City á þessari leiktíð og því vildi hann fá að fara á láni til að auka möguleika sína á að fá að spila á HM í sumar.

Robinho skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu þegar að Manchester City sigraði Scunthorpe um síðustu helgi. Það var jafnframt síðasti leikur hans með Manchester City áður en hann fer til Santos en reiknað er með að Robinho haldi til Brasilíu á sunnudag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.