þri 28. janúar 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Atli og Bjarni framlengja við HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Atli Arnarson og sóknarmaðurinn Bjarni Gunnarsson hafa skrifað undir nýja samninga við HK út keppnistímabilið 2022.

Atli kom til HK haustið 2018 og átti frábært fyrsta ár með liðinu þar sem hann spilaði 20 leiki í deild og bikar og skoraði 5 mörk.

Bjarni hefur gengt lykilhlutverki í sókn HK undanfarin ár og er búinn að spila 73 leiki í deild og bikar fyrir félagið og skorað í þeim 23 mörk.

HK hafnaði í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar í fyrra en liðið var þá nýliði í deildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner