Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 28. janúar 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrrum leikmaður Þór/KA gengin í raðir Man Utd
Kvenaboltinn
Diane Caldwell
Diane Caldwell
Mynd: Manchester United
Diane Caldwell er gengin til liðs við Manchester United en hún lék með North Carolina Courage í Bandaríkjunum í fyrra.

Caldwell þekkir til á Íslandi en hún lék með Þór/KA síðari hluta tímabilsins árið 2011. Hún er varnarmaður en hún lék 7 leiki og skorað eitt mark fyrir Þór/KA.

Hún er írsk og hefur leikið 84 leiki fyrir þjóð sína.

Signe Bruun er einnig gengin til liðs við félagið en hún kemur á láni frá Lyon. Hún er danskur framherji en hún hefur skorað 6 mörk í 11 leikjum fyrir Lyon.
Athugasemdir
banner