Fotbolti.net
28.02.09 - 09:16
Hörður Snævar Jónsson

Ingvar Kale til Breiðabliks (Staðfest)

Ingvar Kale til Breiðabliks (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Ingvar Kale hefur gengið í raðir Breiðabliks frá Víkingum og skrifað undir tveggja ára samning. Frá þessu er greint á Blikar.is.
Ingvar, sem er 25 ára, lék alla leiki Víkings í fyrstu deildinni síðastliðið sumar en árið áður missti hann af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla.

Casper Jacobsen sem varði mark Brieðabliks síðustu tvö ár kemur því ekki aftur til liðsins.

Ljóst er að Ingvar mun styrkja lið Breiðabliks verulega enda liðið séð á eftir mörgum leikmönnum frá síðustu leiktíð.

Þeir Srdjan Gasic, Nenad Zivanovic, Nenad Petrovic, Prince Rajcomar, Jóhann Berg Guðmundsson, Magnús Páll Gunnarsson, Hörður Bjarnason, Steinþór Freyr Þorsteinsson auk Casper Jacobsen eru farnir.

Heimild: Blikar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.