28.03.08 - 12:38
Hafliði BreiðfjörðMagnús Már Einarsson
Fjölnir kaupir Andra Val Ívarsson úr Val (Staðfest)

Andri Valur í leik með Fjarðarbyggð gegn Fjölni síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Framherjinn Andri Valur Ívarsson er genginn í raðir Fjölnismanna frá Val og gerir tveggja ára samning við Grafarvogsfélagið sem eru nýliðar í Landsbankadeildinni á komandi leiktíð. Hann er keyptur til félagsins en kemur ekki á láni eins og Kristján Hauksson sem gekk í raðir þeirra í gær.
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en Andri Valur er 27 ára gamall Húsvíkingur sem hefur verið á mála hjá Val frá því haustið 2005. Hann hefur hins vegar ekki komið áður við sögu hjá liðinu í Landsbankadeildinni.
Andri Valur eru uppalinn hjá Völsungi og hann lék hluta sumarsins 2006 á láni með Húsvíkingum.
Í fyrrasumar var hann síðan í láni hjá Fjarðabyggð þar sem hann skoraði sex mörk í nítján leikjum í fyrstu deildinni.
Hann lék þrjá af fjórum leikjum Vals í Reykjavíkurmótinu en hefur ekki komið við sögu í fjórum leikjum liðsins í Lengjubikarnum.
Í gær gekk Kristján Hauksson einnig í raðir Fjölnismanna en hann kemur á láni frá Val út tímabilið en engin klásúla er um að hægt sé að kalla hann til baka á miðju tímabili og hann má spila með Fjölni gegn Val í deildinni í sumar.
Kristján og Andri Valur munu báðir halda til Portúgals í fyrramálið með Fjölni en þangað fer liðið í æfingaferð.