Fotbolti.net
28.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Tómas Agnarsson í ÍR á láni (Staðfest)

Tómas Agnarsson í ÍR á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Reykjavíkurmeistarar ÍR hafa fengið varnarmanninn Tómas Agnarsson á láni frá KR.
Tómas, sem er tvítugur, var í láni hjá Reyni Sandgerði á síðustu leiktíð.

Hann lék þá fimmán leiki í fyrstu deildinni og einn leik í VISA-bikarnum.

Tómas er uppalinn hjá KR en hann var þrívegis í leikmannahópi liðsins í Landsbankadeildinni 2006.

Hjá ÍR mun hann hitta fyrir annan efnilegan leikmann sem lék með Reyni síðastliðið sumar en það er Árni Freyr Guðnason. Árni gekk til liðs við ÍR á dögunum en hann er í láni hjá liðinu frá FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.