28.03.08 - 16:02
Magnús Már Einarsson
Örn Kató í Hamrana/Vini (Staðfest)

Örn Kató Hauksson (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hamarnir/Vinir, sem leika í 3.deild í sumar, hafa fengið Örn Kató Hauksson til liðs við sig frá Val.
Örn Kató kom til Vals fyrir sumarið 2006 og lék tólf leiki með liðinu í Landsbankadeildinni.
Síðastliðið sumar var hann í láni hjá KA en sú dvöl var skammvinn því hann handleggsbrotnaði í fyrsta leik sínum.
Síðar um sumarið fór hann síðan í Fjarðabyggð á láni og lék níu leiki með liðinu í fyrstu deildinni.
Örn Kató getur leikið sinn fyrsta leik með Hömrunum/Vinum á morgun en þá mætir liðið Ægi í C deild Lengjubikarsins.