28.03.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Anton, Arnór, Gauti og Elías Fannar í KFS á láni (Staðfest)

Gauti Þorvarðarson.

Mynd: Fréttir/Vestmannaeyjar

Gauti Þorvarðarson.

Mynd: Fréttir/Vestmannaeyjar
KFS hefur fengið Anton Bjarnason, Arnór Eyvar Ólafsson, Elías Fannar Stefnisson og Gauta Þorvarðarson á láni frá ÍBV.
Leikmennirnir eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu sem stendur og þar sem að ÍBV á einungis einn leik eftir í Lengjubikarnum þá hafa þeir fengið að fara á láni í KFS til að komast í betri leikæfingu fyrir Íslandsmótið.
Lánssamningurinn tók gildi fyrir helgi og því geta leikmennirnir leikið með KFS gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum í dag.
Allir þessir leikmenn komu við sögu hjá ÍBV í Pepsi-deildinni í fyrra en Gauti lék meðal annars sautján leiki og Arnór Eyvar sextán.