28.03.10 - 21:04
Hafliði Breiðfjörð
Sven Göran Eriksson tekur við Fílabeinsströndinni (Staðfest)

Sven Göran Eriksson verður á HM í sumar.

Mynd: Getty Images

Svíinn Sven Göran Eriksson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Fílabeinsstrandarinnar og stýrir liðinu á Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku í sumar.
,,Sven Göran Eriksson er nýr þjálfari Fílabeinsstrandarinnar. Hann mun stýra liðinu á Heimsmeistaramótinu þar sem markmið hans er að tryggja góða frammistöðu,\" sagði í yfirlýsingu frá knattspyrnusambandi þjóðarinnar í kvöld.
Svíinn hafði stýrt Englandi á Heimsmeistaramótinu árið 2002 og 2006 þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Hann tekur við starfinu af Vahid Halilhodzoc sem var rekinn eftir að liðið féll út í fjórðungsúrslitum Afríkumótsins í janúar.
Liðið er í G-riðli Heimsmeistaramótsins ásamt Brasilíu, Portúgal og Norður Kóreu. Eriksson var síðast yfirmaður knattspyrnumála hjá Notts County í ensku 2. deildinni en hætti þar í janúar eftir eigendaskipti.

Heimild: AFP