Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 17:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: KR skoraði fimm gegn Blikum
Skoruðu fimm.
Skoruðu fimm.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marinó Leví byrjaði hjá KR.
Marinó Leví byrjaði hjá KR.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Breiðablik 2 - 5 KR
Mörk Breiðabliks: Kristófer Ingi Kristinsson og Kristinn Steindórsson.
Mörk KR: Stefán Árni Geirsson, Aron Sigurðarson, Luke Rae, Ástbjörn Þórðarson og Aron Þórður Albertsson.

Breiðablik tók á móti KR snemma í dag á Kópavogsvelli. Liðin eru að undirbúa sig fyrir komandi átök. Næst á dagskrá eru leikir í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. KR tekur á móti Val annan mánudag og Breiðablik heldur norður og mætir Kormáki/Hvöt næsta laugardag.

KR-ingar byrjuðu leikinn í dag frábærlega og leiddu 0-2 eftir rúmt korter. Staðan var 0-4 í hálfleik en Blikar unnu seinni hálfleikin 2-1.

Jón Sölvi Símonarson (2007) stóð vaktina í marki Breiðabliks þar sem Anton Ari Einarsson er með landsliðinu í Kanada. Það vantaði líka nokkra leikmenn í hópana vegna verkefna hjá yngri landsliðunum. Í byrjunarliðinu hjá KR var Marinó Leví Ottósson sem fæddur er 2011.

Byrjunarlið Blika: Jón Sölvi; Valgeir-Viktor Örn-Ívar Örn-Davíð Ingvars; Gabríel-Andri Yeoman-Höskuldur; Óli Valur -Krístófer-Jónatan.

Byrjunarlið KR:Arnar Freyr; Ástbjörn-Finnur Tómas-Gabríel Hrannar; Hrafn T- Arnór Ingvi- Aron Sig- Stefán Geirs- Luke-Marínó; Guðmundur Andri.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Slapp
Athugasemdir
banner
banner