Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þrír leikmenn Arsenal sendir heim úr herbúðum enska landsliðsins
Declan Rice
Declan Rice
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, valdi 35 manna hóp fyrir æfingaleiki gegn Úrúgvæ og Japan í þessum landsliðsglugga.

Hluti hópsins tók þátt í 1-1 jafntefli liðsins gegn Úrúgvæ í gær en ellefu leikmenn áttu að koma inn í hópinn fyrir leikinn gegn Japan á þriðjudaginn sem fram fer á Wembley.

Átta leikmenn hafa yfirgefið hópinn en þar á meðal eru Aaron Ramsdale, Fikayo Tomori og Dominic Calvert-Lewin.

John Stones fer aftur til Manchester vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu fyrir leikinn í gær. Adam Wharton og Noni Madueke meiddust í leiknum og verða því ekki með gegn Japan.

Declan Rice og Bukayo Saka komu til móts við hópinn í gær en munu snúa aftur til Arsenal vegna meiðsla.

Dean Henderson, Nico O'Reilly, Ezri Konsa, Marc Guehi, Dan Burn, Elliot Anderson, Morgan Rogers, Anthony Gordon og Harry Kane eru mættir í herbúiðir Englands til að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Japan.
Slapp
Athugasemdir
banner