Fotbolti.net
28.04.06 - 19:02
Magnús Már Einarsson

Bullard til Fulham í sumar (Staðfest)

Bullard til Fulham í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jimmy Bullard miðjumaður Wigan mun fara til Fulham á 2,5 milljónir punda þegar að félagaskiptaglugginn opnar aftur þann áttunda maí en hann mun gera fjögurra ára samning við síðarnefnda liðið.
,,Þessi tímasetning er ekki sú besta en ég skil að Fulham vildu vera fljótir til að missa ekki af þeirra manni. Jimmy er leiður yfir því að fara en sér þetta sem næsta skref á ferlinum," sagði Paul Jewell stjóri Wigan.

Tilboð Fulham þýddi að Wigan gat ekki neitað því vegna klásúlu sem var í samningi Bullard. Umboðsmaður leikmannsins hótaði því á sínum tíma að hann myndi ekki skrifa undir nýjan samning ef að klásúlan væri ekki í honum og þvi neyddist Wigan til að hafa hana í samningnum.

Hinn 27 ára gamli Bullard hefur leikið 42 leiki á leiktíðinni og skorað í þeim fjögur mörk. Hann lék á sínum tíma með Gravesend og West Ham en kom til Wigan frá Peterbrough á 275 þúsund pund árið 2003.

,,Við erum að fá tíu sinnum meira en við borguðum fyrir hann. Jimmy hefur verið frábær fyrir okkur, ekki mista af leik, hann er frábær strákur en þegar að einhver segir að hann vilji fara og það er klásúla í samningnum hans, hvað getum við gert?" sagði Jewell.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.