Fotbolti.net
28.04.10 - 10:33
Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Björnsson lánaður frá Val í Þrótt (Staðfest)

Haraldur Björnsson er kominn í Þrótt.

Haraldur Björnsson er kominn í Þrótt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Björnsson markvörður Vals og U21 árs landsliðs Íslands hefur verið lánaður í Þrótt út komandi leiktíð en þetta staðfesti Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri Þróttar við Fótbolta.net í dag.
Haraldur og Kjartan Sturluson hafa varið mark Vals undanfarið ár og hafa skipst á að vera í byrjunarliðinu.

Með þessu er því ljóst að það verður Kjartan sem verður aðalmarkvörður Vals í sumar en Ásgeir Magnússon verður varamarkvörður.

Ljóst er að hart verður barist um markmannsstöðuna hjá Þrótti því fyrir eru þar þrír markmenn. Sindri Snær Jensson sem var aðalmarkvörður á síðustu leiktíð, Andri Fannar Helgason og Kjartan Páll Þórarinsson sem kom frá Aftureldingu í vetur.

Sindri Snær hefur reyndar verið meiddur upp á síðkastið og ekkert getað æft með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.