28.04.10 - 12:51
Brynjar Ingi Erluson
Jonjo Shelvey til Liverpool (Staðfest)

Jonjo Shelvey er kominn til Liverpool

Mynd: Getty Images

Jonjo Shelvey er kominn til Liverpool

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur fest kaup á hinum unga og efnilega Jonjo Shelvey frá Charlton Athletic.
Liverpool sigraði kapphlaupið um Shelvey sem kemur til félagsins fyrir 1.7 milljónir punda, en kaupverðið mun hækka með leikjum sem hann spilar fyrir Liverpool og yngri landsliðum Englands.
Hann er því fyrstu sumarkaup Liverpool, en hann gekkst undir læknisskoðun í gær og gengu samningaviðræður klakklaust fyrir sig. Hann mun koma til félagsins 10. maí næstkomandi.
Félögin eru þá einnig í viðræðum um samstarf sem leiðir að þróun ungra leikmanna, en þá ætti Liverpool að geta sent unga leikmenn til Charlton og öfugt.

Heimild: Sky