28.04.10 - 18:30
Hafliði Breiðfjörð
Dofri Snorrason lánaður frá KR í Víking (Staðfest)

Dofri Snorrason í leik með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dofri Snorrason í leik með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dofri Snorrason hefur verið lánaður frá KR til Víkings út komandi tímabil en þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs hjá Víkingi við Fótbolta.net í dag.
Dofri er hægri bakvörður sem þykir efnilegur. Hann er uppalinn hjá KR þar sem hann er samningsbundinn út þetta ár.
Hann hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með KR í Lengjubikarnum í vor þar sem hann lék alla riðlaleiki liðsins.
Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Víkings frá KR fyrir tímabilið en áður hafði Kristinn Jóhannes Magnússon komið. Þá hefur Víkingur einnig styrkt sig með þeim Hjalta Má Haukssyni sem kom frá KA, Helga Sigurðssyni sem kom frá Val og Milos Milojevic sem kom frá Hamar.