28.05.11 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Gunnar Þorsteinsson í Ipswich (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Grindvíkinga, mun í næsta mánuði skrifa undir tveggja ára samning hjá enska félaginu Ipswich Town.
Gunnar hefur tvívegis farið til Ipswich á reynslu og hann mun halda ásamt foreldrum sínum til Englands 27. júní næstkomandi þar sem skrifað verður undir samninga. Í kjölfarið hefur Gunnar æfingar með U18 ára liði Ipswich þann 29. júní.

Þessi 17 ára gamli miðjumaður er sonur Þorsteins Gunnarssonar formanns knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Þorsteinn er harður stuðningsmaður Ipswich og það hefur Gunnar einnig verið alla sína tíð.
Gunnar lék tvo leiki með Grindavík í Pepsi-deildinni árið 2009 en hann lék einnig með liðinu á undirbúningstímabilinu í ár. Þá á hann að baki fimm leiki með U17 ára landsliði Íslands.