28.05.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
James Vaughan til Norwich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norwich City hefur fengið keypt framherjann James Vaughan frá Everton. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að þa sé 2,5 milljónir punda.
Vaughan er fyrsti leikmaðurinn sem Norwich fær til sín eftir að félagið komst upp í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik.
Þessi 22 ára gamli leikmaður var á láni hjá Crystal Palace á nýliðnu tímabili þar sem hann skoraði níu mörk í 30 leikjum í Championship deildinni.

,,Ég hef engar áhyggjur. Ég held að hann muni standa sig frábærlega,\" sagði Paul Lambert stjóri Norwich.
Vaughan varð árið 2005 yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði í 4-0 sigri á Crystal Palace, þá 16 ára og 271 daga gamall.

Heimild: BBC