Atli Þór Gunnarsson er í dag án félags eftir að hafa fyrr á þessu ári fengið samningi sínum við Breiðablik rift. Hann var samningsbundinn Blikum út þetta ár en sá samningur er úr gildi.
Hann æfir þessa dagana með grönnunum í HK, en HK er í Lengjudeildinni.
Atli er fæddur árið 2006 og er enn á 2. flokks aldri. Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net getur hann sem ósamningsbundinn leikmaður á yngri flokka aldri fengið félagaskipti utan félagaskiptaglugga, allt þar til 31. júlí.

Atli er miðjumaður sem kom við sögu í fjórum leikjum með Breiðabliki tímabilið 2023 en hann hafði fyrr á því ári verið valinn í æfingahóp U17 landsliðsins.
Athugasemdir