Spánarmeistarar Barcelona eru stórhuga fyrir sumargluggann en félagið ætlar að eyða háum fjárhæðum í tvo leikmenn á næstu vikum.
Stærstu miðlar heims greindu frá samkomulagi Barcelona við Newcastle United um enska vængmanninn Anthony Gordon.
Gordon mun fljúga í læknisskoðun til Barcelona í dag og skrifa undir langtímasamning, en það er bara byrjunin á risaglugga hjá Börsungum.
ElCatalunyaRadio segir að Joan Laporta, forseti félagsins, sé þegar byrjaður að funda með Atlético Madríd varðandi kaup á Argentínumanninum Julian Alvarez.
Alvarez hefur lengi verið á óskalista Börsunga. Frammistaða hans með Atlético síðustu tvö ár hefur verið í hæsta gæðaflokki og telur Barcelona hann vera mikilvægan leikmann í að viðhalda frábærum árangri félagsins.
Atlético vill fá í kringum 150 milljónir evra fyrir Alvarez sem gæti reynst of dýrt fyrir Barcelona sem hefur verið að glíma við fjárhagsvandræði síðustu ár.



