Ibrahima Konate mun yfirgefa Liverpool þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Sky Sports greinir frá þessu.
Þessi 27 ára gamli franski miðvörður hefur verið í viðræðum við félagið um nýjan samning en ekki náðist að semja.
Þessi 27 ára gamli franski miðvörður hefur verið í viðræðum við félagið um nýjan samning en ekki náðist að semja.
Hann hefur verið orðaður við mörg félög undanfarna mánuði en hann hefur sterklega verið orðaður við Real Madrid.
Konate hefur spilað 181 leik fyrir Liverpool síðan hann gekk til liðs við félagið frá Leipzig árið 2021. Hann vann úrvlasdeildina, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn tvisvar.



